Skip to main content
Kraftbirtingarhljómur guðdómsins

Kraftbirtingarhljómur guðdómsins

By Útvarp 101

Rapparar ræða rapptónlist - erlenda og innlenda - sína eigin og annarra. Hver og einn fær tækifæri til þess að spila eitt lag. Hið fullkomna rapplag; kraftbirtingarhljóm guðdómsins. Nýr þáttur annan hvern mánudag allt 2020.


Spurningar/ábendingar/uppástungur sendast á þáttarstjórnandann Bergþór Másson (@bergthormasson) á Facebook/Instagram/Twitter
Available on
Apple Podcasts Logo
Google Podcasts Logo
Overcast Logo
Pocket Casts Logo
RadioPublic Logo
Spotify Logo
Currently playing episode

Alexander Jarl

Kraftbirtingarhljómur guðdómsinsFeb 17, 2020

00:00
02:38:39
Shades Of Reykjavik

Shades Of Reykjavik

Elli Grill og Arnar Guðni/King Puffin fara yfir stormkenndan feril hljómsveitarinnar Shades of Reykjavik frá byrjun til enda. 

Jul 05, 202102:21:31
Kilo

Kilo

Kilo segir frá sjálfum sér í Bandaríkjunum, hvernig hann byrjaði að hlusta á rapp, hvernig hann byrjaði að rappa og afhverju hann gerir það sem hann gerir. Einnig fer hann í djúpgreiningu á íslensku rappi, segir frá top 5 röppurunum sínum, top 5 plötunum sínum og allskonar annað epískt.

Jun 21, 202101:52:10
Haki

Haki

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Haki talar um hvernig hann byrjaði að rappa og hlusta á rapp í gegnum hjólabretti, fer yfir ferilinn og lagið með Bubba og talar meðal annars fallega um Lil Baby og Lil Durk.

Jun 07, 202101:00:43
Aron Can

Aron Can

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Aron Can „breytti leiknum, leikurinn hann breytir þeim“ með útgáfu Þekkir Stráginn árið 2016. Síðan þá hefur boltinn rúllað og Can skilað sínu og séð um sína. Hér er farið yfir hvernig hann byrjaði að rappa og svo syngja, hvað hann hlustaði á, tenginguna við Tyrkland og framtíðina í útlöndum.

May 24, 202101:37:59
Robbi Kronik

Robbi Kronik

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Róbert Aron Magnússon byrjaði með útvarpsþáttinn Kronik árið 1993. Þá hafði hvorki rapp verið spilað né rætt í íslensku útvarpi. Tekin voru viðtöl við rappara, menn mættu eða hringdu inn og freestæluðu - og kúltúrnum voru gerð skil. Robbi hefur einnig flutt inn ótal erlendra rappara og haldið regluleg „hip-hop djömm“. 

May 10, 202101:30:23
Countess Malaise

Countess Malaise

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Countess Malaise talar um rappupgötvunarferlið, karaoke, listnám í Amsterdam, tónlistarsenuna í Amster, tónlistarmyndbandagerð, konur í rappi, íslenskt rapp 2017, hvernig hún byrjaði að rappa, upphitun fyrir Tommy Cash, samstörf með Bngrboy og Lord Pusswhip, kynnir nýja plötu í sumar og fullt fleira.

Apr 26, 202152:60
Krabba Mane

Krabba Mane

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Krabba Mane talar um hvernig hann byrjaði að gera beats og svo rappa, hvernig hann uppgötvaði rapp í gegnum CoD myndbönd, tjáir ást sína á meisturunum miklu Lil Uzi Vert, Playboi Carti og Madlib, hlutverk Bangerboy í rappferli sínum, íslenskt rapp í aldanna rás, Prikið og allskonar annað.

Apr 12, 202101:23:43
Birnir

Birnir

Þessi þáttur er í boði Yuzu.


Rapparinn Birnir fer yfir gamla og góða tíma í Kópavoginum og rifjar upp rappminningar í leiðinni. Hann talar um hvernig hann byrjaði að hlusta á rapp, hvernig hann byrjaði að búa til rapp, hvenær hann varð góður, hvernig hann varð betri og hvað það er sem að mögulega gerir hann góðan. Einnig talar Birnir um áfengis- og vímuefnameðferðirnar í Svíþjóð og mikilvægi edrúmennskunnar. Rapparar sem er m.a talað um eru: Gísli Pálmi, UGK, Kendrick Lamar, Drake, Wiz Khalifa, A$AP Rocky, Yung Lean og ScHoolboy Q

Mar 29, 202101:34:38
Yung Nigo Drippin'

Yung Nigo Drippin'

Þessi þáttur er í boði Yuzu.


Yung Nigo Drippin fer yfir Hafnarfjarðartrappið, hvernig hann byrjaði að rappa, graffiti, Suðurríkjarappið sem mótaði hann, útgáfurnar sínar, hvernig hann myndi coacha unga rappara, hvernig hann lærði að rappa og hvað er framundan.

Mar 15, 202101:31:04
Huginn

Huginn

Þessi þáttur er í boði Yuzu. 


Huginn fer yfir: uppvaxtarárin á Íslandi og í Danmörku, rappið sem mótaði hann, hvort hann sé almennt rappari?, upphafið á ferlinum, lögin sem hann hefur gefið út, KBE & Herra Hnetusmjör, Eini Strákur Vol. 1 og svo Vol. 2 sem er á leiðinni.

Mar 01, 202101:59:50
Alvia Islandia

Alvia Islandia

Þessi þáttur er í boði Yuzu.


Alvia Islandia fer yfir allt þetta helsta: unglingsárin í Hlíðunum, uppgötvun sína á íslensku rappi u.þ.b 2006, þegar hún byrjaði að rappa, þegar hún byrjaði að koma fram, allar helstu útgáfurnar, verðlaun, world-building og svo er talað um hina og þessa rappara: Missy Elliot, Nicki Minaj, Cardi B, Gucci Mane, Gísli Pálmi, Floni, Yung Nigo Drippin', Marlon Pollock, Riff Raff ofl ofl ofl!

Feb 15, 202101:30:49
Afkvæmi guðanna

Afkvæmi guðanna

Þessi þáttur er í boði Yuzu.


Stjáni og Seppi ræða upprunann, ferilinn og rapptónlist almennt. 


Árbærinn sem Brooklyn, Yo MTV Raps, stofnun XXX Rottweiler, Guli Drekinn, Gísli Pálmi, Blaz Roca, Ævisögur, Dæmisögur, ný músík ofl ofl ofl.

Feb 01, 202101:55:27
Jói Dagur

Jói Dagur

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Jói Dagur/Ruddagaddur fer yfir ferilinn og ræðir rappuppeldið. Önnur umræðuefni eru meðal annars: túr Þriðju Hæðarinnar í Litháen, æskan á Íslandi, Wu-Tang Clan, The Prodigy, eiturlyfjaneysla og edrúmennska, Dabbi T & Óheflað Málfar, Gísli Pálmi, Herra Hnetusmjör ofl ofl ofl.


Jan 18, 202101:42:36
Skytturnar

Skytturnar

Skytturnar frá Akureyri í viðtali. Kom upprunalega út í janúar 2021, datt út vegna höfundarréttamála en komið aftur.

Jan 04, 202157:32
Úlfur Úlfur

Úlfur Úlfur

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Helgi Sæmundur og Arnar kynntust á Sauðárkróki sem ungir piltar með áhuga á rapptónlist. Árið 2010 stofnuðu þeir hljómsveitina Úlfur Úlfur og hægt og rólega unnu þeir sig upp metorðastigann í Reykjavík og nú er óhætt að segja að þeir séu ein besta íslenska rapphljómsveit allra tíma. 


Dec 21, 202002:15:17
Kristmundur Axel

Kristmundur Axel

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Kristmundur Axel fer yfir gamla tíma í Grafarvoginum, segir sögurnar á bakvið helstu smellina, tjáir sig um stöðu íslensks rapps í dag og ræðir rappið sem mótaði sig sem mest.

Önnur umræðuefni eru meðal annars: Crewin í Grafarvoginum, MySpace, íslenskt rapp á árunum 2006-2011, Blár Ópall, Eurovision, Daníel Alvin, Júlí Heiðar, Dabbi T, Óli Geir, eiturlyfjaneysla, edrúmennska, sjálfsvinna, DMX, Lil Wayne, Big L, 2Pac og Biggie ofl ofl ofl

Dec 07, 202001:33:26
Kef Lavík

Kef Lavík

Þessi þáttur er í boði Yuzu. 


Umræðuefni eru meðal annars: upphaf og þróun hljómsveitarinnar, Höfn í Hornafirði, Þórbergur Þórðarson, Slots, dóp á djamminu, Drake, The Weeknd, breskt rapp, besta plata Kanye, íslenskt rapp á YouTube, skilin á milli popps og rapps, dónalegir textar, hlöðuböll,

Nov 23, 202001:43:24
Dóri DNA & Danni Deluxe

Dóri DNA & Danni Deluxe

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Dóri DNA og Danni Deluxe fara yfir tímana í Bæjarins Bestu og 1985!, tala um gerð og útgáfu hins sígilda mixteips „Stelpur & Chill“, greina stemningu og erjur innan íslensku rappsenunar í byrjun 21. aldar, segja stríðssögur frá hörðum heimi íslensku battlsenunnar, setja mikla virðingu á nöfn Erps Eyvindarsonar, Steinda Jr., og Afkvæmi Guðanna og ræða rappið sem mótaði þá hvað mest.

Nov 09, 202001:36:16
Cell7

Cell7

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Ragna Kjartansdóttir, Cell7, er almennt talin vera fyrsta „rappstjarna“ Íslands. Hún er stofnaði rapphljómsveitina Subterranean árið 1997 og flutti síðan til New York í aldarbyrjun í hljóðnám. Árið 2013 snéri hún síðan aftur í rappið með útgáfu plötunnar „Cellf“.  Í fyrra gaf hún síðan út plötuna “Is Anybody Listening?“.

Hér fer Cell7 yfir ferilinn, íslenskt rapp á tíunda áratugnum, útvarpsþáttin Kronik, dvölina í New York og stúdíóvinnu þar, Erykah Badu, Mac Miller og ný tónlistarverkefni.



Oct 26, 202001:05:47
Dabbi T

Dabbi T

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Agastjórnun í Hagaskóla, Vesturbærinn, Westsiders, gríðarlegt fjárhagslegt tjón við útgáfu Ófheflaðs Málfars, sagan á bakvið hið klassíska lag Gremja, stemningin í íslensku rappi á árunum 2005-2008, Emmsjé Gauti, Gísli Pálmi,  edrúmennska, eiturlyfjaneysla, eitruð karlmennska í rappmenningu ofl ofl ofl

Oct 12, 202001:35:56
Forgotten lores

Forgotten lores

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Meðlimir hinnar goðsagnakenndu hljómsveit Forgotten lores fara yfir gamla tíma; íslenskt rapp í byrjun aldar, gigg fyrir The Corporate Corporation í Washington, J Dilla, Looptrop, útvarpsþátturinn Kronik, markaðsvæðing hip hopsins ofl ofl ofl!

Sep 28, 202002:04:39
Séra Bjössi

Séra Bjössi

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Séra Bjössi í viðtali.

Sep 14, 202001:32:54
Séra Bjössi

Séra Bjössi

Séra Bjössi tala um Hafnarfjörðinn, SoundCloud, byrjun ferilsins, grín, alvöru, stemningu, rapp, country, gigg, pródúksjon, atvinnuflug, Meek Mill, Herra Hnetusmjör, Birni, Kanye West, guð ofl ofl ofl!

Sep 14, 202001:32:52
GKR

GKR

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

GKR talar um æskuárin í Vesturbænum, hvernig hann byrjaði að gera tónlist,  rappuppgötvunarferlið sitt, óvæntar vinsældir Morgunmats og frægðina í kjölfar þess. Sigrar, töp, lærdómar, lexíur ofl ofl ofl.

Aug 31, 202001:26:39
Logi Pedro

Logi Pedro

Þessi þáttur er í boði Yuzu.


Logi Pedro talar um sögu og þróun íslensks rapps, Kanye & Drake, afríska músík, Pop Smoke & XXXTentacion, stöðu íslenska tónlistarbransans & ósvífnu samningagerðirnar sem viðgangast, sitt eigið rappuppgötvunarferli, árin í Berlín með Retro Stefson, Sturla Atlas veisluna, sinn eigin sólóferill ofl ofl of

Aug 17, 202001:55:26
CYBER

CYBER

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Jóhanna Rakel og Salka Valsdóttir mynda rapphljómsveitina Cyber, sem spratt upp úr Menntaskólanum í Hamrahlíð og Reykjavíkurdætrum um miðjan síðastliðinn áratug.

Í þættinum er rætt um brúðkaup, áfengisneyslu, vináttu, íslensku rappsenuna og stöðu kvenna í henni, gaura á djamminu sem krefjast svara við skrítnum rappspurningum og margt fleira.

Aug 03, 202002:27:57
Bent

Bent

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Eyddist út í byrjun árs 2021 vegna höfundaréttarmála en nú kominn aftur.

Jul 27, 202001:18:23
Reykjavíkurdætur

Reykjavíkurdætur

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Ferillinn, hatrið, pólitíkin, Ísland, útlönd, festivöl, menntaskólaböll, karlkyns rapparar, kvenkyns rapparar. Allt þetta, ásamt ýmsu öðru, kemur við sögu í þessu epíska spjalli.

Jun 22, 202001:42:38
Joey Christ

Joey Christ

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Joey Christ talar í lausnum, leggur línurnar, útskýrir lyklana að lífinu og veitir innblástur. 

Rappið, leiklistin, útvarpið, æskan, fullorðinsárin, og allt þetta helsta.

Jun 08, 202002:01:17
Birgir Hákon

Birgir Hákon

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Birgir Hákon ræðir æskuna, trúnna, trappið, rappið, tilganginn, milliveginn, ferlið, hugarfarið, mistökin, sigrana ásamt ótal öðrum hlutum.



May 25, 202002:07:23
Lord Pusswhip

Lord Pusswhip

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Lord Pusswhip ræðir æskuna og unglingsárin í Vesturbænum, sitt persónulega tónlistaruppgötvunarferli, Berlín, Los Angeles ofl ofl ofl.

May 11, 202002:07:60
Emmsjé Gauti - seinni hluti

Emmsjé Gauti - seinni hluti

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Emmsjé Gauti ræðir sjálfshjálp, pólitík, rapp, viðskipti, listsköpun, samkeppni, föðurhlutverkið, breytingar á rappleiknum, hljómsveitirnar Skábræður og 32C, plöturnar Bara Ég og Þeyr ofl ofl ofl.

Apr 27, 202001:17:55
Emmsjé Gauti - fyrri hluti

Emmsjé Gauti - fyrri hluti

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

Emmsjé Gauti ræðir sjálfshjálp, pólitík, rapp, viðskipti, listsköpun, samkeppni, föðurhlutverkið, breytingar á rappleiknum, hljómsveitirnar Skábræður og 32C, plöturnar Bara Ég og Þeyr ofl ofl ofl.

Apr 27, 202001:39:34
JóiPé

JóiPé

Þessi þáttur er í boði Yuzu.

JóiPé ræðir ferilinn, Garðabæinn, samstarfið með Króla, listræna þróun sína, myndlistina, handboltann, rappið, pródúseringuna, frægðina, sviðsskrekkinn, feimnina og lífið. Ásamt óteljandi öðrum hlutum.



Apr 13, 202002:18:39
24/7

24/7

Þessi þáttur er í boði Yuzu Burger á Hverfisgötu 44.  Kraftbirtingarhljómur guðdómsins mælir sterklega með því að hlustendur styðji við bakið á veitingastöðum borgarinnar í gegnum þessa tíma. Yuzu er með hagstæða og frábæra tilboðspakka í gangi. Kíkið á www.yuzu.is.

24/7 talar um hvaðan hann fær hæfileikana, hvaða tónlist hann er að hlusta á, hvernig hann semur lögin sín,  hvernig það að vera kallaður „feature rappari“ hafði áhrif á hann, afhverju hann reppar Hafnafjörðinn, Kringlutímabilið sitt, sérstaka samband sitt við Yung Nigo Drippin' og maaaaargt margt fleira. 




Mar 30, 202002:04:18
Floni

Floni

Þessi þáttur er í boði 66North og Yuzu.

Tónlistamaðurinn/rapparinn/trapparinn/rokkarinn/popparinn Floni er viðmælandi Bergþórs Mássonar í fjórða þætti Kraftbirtingarhljóms guðdómsins.

Floni segir frá sköpunarferlinu, rapparalífinu, djamminu, tilfinningunum, hvernig hann dílar við frægðina, hvernig hann dílar við höfnun ofl ofl ofl.


Mar 16, 202002:33:49
Sturla Atlas

Sturla Atlas

Sturla Atlas í viðtali. Kom upprunalega út í mars 2020. Nú komið aftur inn.

Mar 09, 202002:36:05
Alexander Jarl

Alexander Jarl

Þessi þáttur er í boði 66 Norður og Yuzu.

Jarlinn stiklar á stóru. Ferilinn ítarlega greindur. Umbreytingin úr Abstrakt Idea yfir í Alla Abstrakt yfir í Alexander Jarl. Sigrarnir, töpin og allt þar á milli. Æskan í vesturbænum og miðborginni. Margt, margt, margt, margt fleira.

Reistu í verki viljans merki, vilji er allt sem þarf.

Spurningar/ábendingar/uppástungur berast til Bergþórs Mássonar á Instagram/Twitter/Facebook - @beemasson.

Feb 17, 202002:38:39
Herra Hnetusmjör

Herra Hnetusmjör

Þessi þáttur er í boði 66°Norður & Yuzu.

Herra Hnetusmjör er fyrsti viðmælandi Bergþórs Mássonar í Kraftbirtingarhljómi Guðdómsins.

Farið er yfir uppvaxtarárin, íslenska tónlistarbransann, ferilinn, framtíðaráform, rapptónlistina sem listform, föðurhlutverkið, stöðu íslensks rapps ofl. ofl.





Feb 03, 202001:58:53