Skip to main content
Hjúpurinn

Hjúpurinn

By Patricia Anna Thormar

Hjúpurinn er ný hlaðvarpsþáttaröð sem sviptir hulunni af loftslagsmál í leit að aðgengilegum, óhefðbundnum en umfram allt SKEMMTILEGUM lausnum við loftslagsvandanum ― svo þú getir andað léttar! Þáttastjórnendur: Patricia Anna Þormar & Silja Elvarsdóttir Grafík: Aron Freyr Heimisson Ljósmyndir: Sonja Margrét Ólafsdóttir Íslensk villiblóm: Pastel blómastúdíó Tónlistarstef: Kjartan Baldursson
Available on
Apple Podcasts Logo
Google Podcasts Logo
Overcast Logo
Pocket Casts Logo
RadioPublic Logo
Spotify Logo
Currently playing episode

Hjúpurinn - Annar þáttur: Samgöngur og lífsgæði

HjúpurinnMar 21, 2019

00:00
29:10
Sólarkvarðinn: Einkunnagjöf fyrir kosningar
Sep 02, 202150:20
Reykjavík Tool Library

Reykjavík Tool Library

Fyrir þá sem vilja heyra eitthvað annað en kórónufréttir þá er Hjúpurinn kominn aftur eftir laaaaangt hlé! Við ræddum við frumkvöðulinn á bak við Reykjavík Tool Library, Anna Worthington de Matos, um munum á deilihagkerfi🤝 og hringhrásarhagkerfi♻️, DIY vinnustofur og Repair Café 🔧☕️, um aðgengi, frumkvöðlastarfið og fyrstu ljósaperu sögunnar💡 og margt fleiri en ekki síst um samfélagið og hugsjónina á bak við þetta frábæra framtak.

Ath. upptakan fer fram að mestu leyti á ensku.

Mar 15, 202045:27
Borgin og grasrótin
Oct 23, 201901:07:14
Extinction Rebellion

Extinction Rebellion

Hvað er Extinction Rebellion og hvernig vilja þau breyta því hvernig við hugsum um loftslagsmál?

Við fengum til okkar þá Gísla Sigurgeirsson og Guðmund Ragnar Guðmundsson og ræddum um listina að láta handtaka sig, að finna gleðina í baráttunni og hvað það merkir í raun að vera róttækur (og hvernig það tengist—óbeint —rótargrænmeti)!

Verði ykkur að góðu...

Oct 13, 201954:51
Grænar fjárfestingar

Grænar fjárfestingar

Hvernig getum við látum peningana vinna fyrir okkur OG margfaldað ávinningin fyrir umhverfið í leiðinni? Hvaða kostir eru í boði fyrir þá sem vilja fjárfesta í grænni framtíð? Við vildum vita svarið og fengum því til okkar Kristínu Jónu Kristjánsdóttur og Brynjólf Stefánsson, starfsmenn Íslandssjóða, til að útskýra hvernig svokölluð græn skuldabréf virka og ræða hvort sjálfbærar, ábyrgar fjárfestingar séu að verða nýju trendin í fjármálaheiminum!

Sep 12, 201946:02
Ungmenni og umhverfisfræðsla

Ungmenni og umhverfisfræðsla

Við skyggnumst inn í starf Silju Elvarsdóttur sem er nýr meðstjórnandi Hjúpsins, en hún hefur ýmsa reynslu að miðlun umhverfismála til ungmenna ásamt því að stunda nám í umhverfisstjórnun og -miðlun í Svíþjóð. Við ræðum um hnattrænt jafnrétti,  "ecosystem services" og kynnumst því hvaða hlutverki lýðræði og fræðsla spilar við miðlun hugmynda um náttúruvernd.

Sep 05, 201919:40
Hvað er svona hræðilegt við hamfarahlýnun?

Hvað er svona hræðilegt við hamfarahlýnun?

Getur húmor hjálpað okkur að nálgast ógnvænleg vandamál eins og hamfarahlýnun? Hvaða hlutverki gegnir grín þegar kemur að því að breyta samfélögum? Við fengum til liðs við okkur leikkonuna og grínistann Sögu Garðarsdóttur og baráttukonuna og húmoristann Katrínu Oddsdóttur til að varpa ljósi á þetta. Við ræddum allt frá sjálfsfróun til stjórnarskrár, frá borgaralaunum til bókasafna, kaffimál og keppni (og allt á háalvarlegum nótum, að sjálfsögðu...) 

Njótið vel - Takk fyrir okkur Saga og Kata!

Aug 29, 201901:13:51
Til hvers að lýsa yfir neyðarástandi?

Til hvers að lýsa yfir neyðarástandi?

Til hvers að lýsa yfir neyðarárstandi og hvers vegna getum við ekki beðið?  Halldór Reynisson, verkefnisstjóri umhverfismála kirkjunnar, er gestur Hjúpsins þessa vikuna og við ræðum um nýlega ákvörðun preststefnu um að lýsa yfir neyðarástandi, um forystusauði og ráðsmennsku yfir jörðinni, kirkjur og vísindi. 

Ættu íslensk stjórnvöld að lýsa yfir neyðarástandi vegna loftslagsmála? Skiljið eftir athugasemdir ykkar í komment!

May 23, 201936:07
Hjúpurinn - Fimmti þáttur: 11 leiðir að betra loftslagi fyrir lata umhverfissinna

Hjúpurinn - Fimmti þáttur: 11 leiðir að betra loftslagi fyrir lata umhverfissinna

Hjúpurinn veitir áheyrundum ráð um hvernig megi stemma stigu við loftslagsbreytingum og minnka umhverfissporið sitt. Þátturinn er einkum ætlaður lötum umhverfissinnum eða þeim sem eiga erfitt með að taka af skarið og ráðast í umfangsmiklar lífsstílsbreytingar!

Apr 11, 201923:42
Hjúpurinn - Fjórði þáttur: Forvitni er fyrsta skrefið

Hjúpurinn - Fjórði þáttur: Forvitni er fyrsta skrefið

Gestur Hjúpsins þessa vikuna er Dr. Snjólaugu Ólafsdóttur sjálfbærniráðgjafi en hún hefur nokkur óvænt en skemmtileg ráð til að takast á við loftslagsvandann.

Apr 05, 201929:49
Hjúpurinn - Þriðji þáttur: Loftslagskvíði

Hjúpurinn - Þriðji þáttur: Loftslagskvíði

Gestur Hjúpsins þetta skiptið er Daðey Albertsdóttir, en hún meistaranemi í klínískri sálfræði og skrifaði grein sem ber heitið Með loftslagsáhyggur heimsins á herðum mér (aðgengilegt á Vísi). Hér ræðum við um loftslagskvíða og hvaða ráð eru við honum.

Umsjón: Patricia Anna Þormar 

Tónlistarstef: Kjartan Baldursson


Apr 01, 201935:51
Hjúpurinn - Annar þáttur: Samgöngur og lífsgæði

Hjúpurinn - Annar þáttur: Samgöngur og lífsgæði

Sigurborg Ósk Haraldsdóttir formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur og borgarfulltrúi Pírata spjallar um draumaborgarskipulagið, vistvænar samgöngur, lífsgæði og gatnamótatónleika.

Mar 21, 201929:10
Hjúpurinn - Fyrsti þáttur: Loftslagsverkfall!

Hjúpurinn - Fyrsti þáttur: Loftslagsverkfall!

Hjúpurinn er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar um lausnir við loftslagsvandanum.  Fyrstu gestir þáttarins eru Elsa María Guðlaugs og Drífudóttir, formaður Landssamtaka Íslenskra stúdenta  og Sigurður Loftur Thorlacius, ritari Ungra umhverfissinna, sem ræða um loftslagsverkföll stúdenta og hvaða aðgerðir þau telja nauðsynlegar til að stemma stigu við auknum útblæstri.

Mar 14, 201925:39