Skip to main content
Leiðin til bata

Leiðin til bata

By Podcaststöðin

Hlaðvarpsþáttur sem unninn er í samstarfi við Podcaststöðina.

Í þættinum segja einstaklingar sem háð hafa baráttu við alkahólisma sögu sína af sigrum, ósigrum, sorginni og gleðinni á leið sinni í átt að batanum.
Available on
Apple Podcasts Logo
Google Podcasts Logo
Overcast Logo
Spotify Logo
Currently playing episode

Leiðin til Bata #12

Leiðin til bataMar 11, 2020

00:00
58:19
Leiðin til bata #31

Leiðin til bata #31

Þegar maður vaknar við það að hafa stungið mann með hníf og sært hann lífshættulega verður maður fyrst hræddur.

Nov 17, 202001:04:35
Leiðin til bata #30

Leiðin til bata #30

Tveim tímum eftir fyrsta bjórinnn eftir 3 ára edrúmennsku var ég kominn á klósettið á Naza með alla vasa fulla af fíkniefnum. Ég ætlaði samt bara fá mér einn bjór.

Oct 29, 202001:32:41
Leiðin til bata #29

Leiðin til bata #29

Símtal við 8 ára dóttur þegar hann var inni á Vogi snarbreytti öllum vangaveltum hans um meðferðina. 36 ára karlmaður segir okkur sögu sína gegnum 3 meðferðir.

Oct 21, 202001:17:60
Leiðin til bata #28

Leiðin til bata #28

Læknirinn sem tók á móti honum á gjörgæslu eftir sjálfsvígstilraun varð svo sponsorinn hans.

Sep 23, 202001:10:46
Leiðin til bata #27

Leiðin til bata #27

Mamma kunni ekki faðirvorið og því þurfti ég að finna minn guð sjálf.

Aug 04, 202001:14:02
Leiðin til bata #26

Leiðin til bata #26

Ung kona segir okkur sögu sína sem er lituð af kynferðisáreiti sem elti hana úr neyslu inn í AA samtökin og hvernig það hefur verið að glíma edrú við dómskerfið og sjálfan gerandann.

Jul 23, 202001:18:17
Leiðin til bata #25

Leiðin til bata #25

Eina leiðin sem hann sá var að svipta sig lífi og eftir að hafa gert alvarlega tilraun til þess fór hann að leitast eftir þeirri aðstoð sem hann þurfti.

Jul 16, 202001:15:21
Leiðin til bata #24

Leiðin til bata #24

Hann er búinn að vera fjölmörg ár edrú og hefur uppgvötvað að það er ekki nóg að hætta að drekka. Hann var ekki í góðum bata þegar hann mætti í vikudvöl á Staðarfell eftir 2 ára edrúmennsku.

Jul 02, 202001:06:36
Leiðin til bata #23

Leiðin til bata #23

Eftir 11 ár í neyslu þar sem nánast allt var prófað og 13 innlagnir á hinar ýmsu stofnanir er þessi 42 ára kona komin með 18 ár edrú. Hún fer í gegnum þetta allt með okkur en það hefur líka gengið á ýmsu síðustu ár.

Jun 25, 202001:26:26
Leiðin til bata #22

Leiðin til bata #22

Alanon þáttur sem margir hafa verið að bíða eftir og biðja um.

Jun 09, 202001:11:43
Leiðin til bata #21

Leiðin til bata #21

33 ára gömul kona sem er búin að vera edrú í tæp 7 ár segir okkur sögu sína. Algerlega trúlaus kom hún í samtökin og það tók tíma fyrir hana að tengjast sínum ætði mætti.

Jun 05, 202001:18:28
Leiðin til bata #20

Leiðin til bata #20

Við þekkjum það vel þegar okkur finnst við ekki eiga við vandamál að stríða því við drekkum bara léttvín eða drekkum bara rauðvín á kvöldin. Hún kom til okkar og sagði sína mögnuðu sögu á einlægan hátt um kynferðismisnotkun í æsku, ofbeldissambönd og sína rauðvínsneyslu.

May 28, 202001:11:13
Leiðin til bata #19

Leiðin til bata #19

Eftir sína fyrstu og einu meðferð tók hann AA samtökin föstum tökum og segir okkur sögu sína sem er nánast skylduhlustun.

May 25, 202001:37:03
Leiðin til bata #18

Leiðin til bata #18

Líf hans hefur snúist um neyslu eða meðferðir. Eftir ótal innlagnir á meðferðastofnanir segir 56 ára karlmaður okkur söguna hvernig hann náði bata.

May 17, 202001:46:18
Leiðin til bata #17

Leiðin til bata #17

Hún reyndi að flýja alkóhólismann sinn með að flytja til hunna ýmsu boorga um allan heim en áttaði sig svo loks á að við flýjum ekki frá sjúkdómnum.

Einlæg og hrikalega falleg saga ungrar konu sem barðist við sjúkdóminn í mörg ár áður en hún fann leiðina sína að batanum.

May 06, 202001:25:11
Leiðin til bata #16

Leiðin til bata #16

Eftir fjöldan allan af meðferðum náði hann loks árangri eftir 6 mánaða dvöl á Krísuvík og hefur náð að búa sér til farsælt líf i dag. Það hefur þó gengið á ýmsu og meðal annars lést barnsmóðir hans úr sjúkdómnum.

Apr 28, 202001:11:46
Leiðin til Bata #15

Leiðin til Bata #15

Hún var komin í dagneyslu á fíkniefnum og öllu sem hún komst yfir aðeins 12 ára gömul.  Eftir margítrekaðar innlagnir inn á Vog opnuðust augu hennar þegar hún týndi kornungu barni sínu en klukkutíma pössun varð að nokkrum dögum. Mögnuð frásögn konu sem hefur nú verið edrú í mörg ár og á frábært líf í dag.

Apr 17, 202001:25:00
Leiðin til bata #14

Leiðin til bata #14

Af æðruleysi segir hann okkur söguna af því hvernig hann fann sinn botn þegar hann ætlaði að setja barn sitt í hættu þegar hann var þjakaður af alkóhólisma. Í dag vinnur hann við að hjálpa öðrum sem vilja komast á leiðina til bata.

Mar 26, 202001:19:10
Leiðin til bata #13

Leiðin til bata #13

Þegar bæði fjölskyldan og meðferðastofnanir voru búin að loka öllum dyrum á hann tók Krýsuvík við honum.  Þar náði hann loksins að snúa við lífinu og fékk lífsvonina aftur. Það hefur þó tekið mikið á.

Þrjú ár edrú og hann segir sögu sína þessa vikuna.

Mar 17, 202001:24:03
Leiðin til Bata #12

Leiðin til Bata #12

Hann byrjaði varla að smakka áfengi fyrr en rétt um 19 ára en 10 árum síðar reynir hann sjálfsvíg og rankar við sér á gjörgæslu.  Á afar einlægan hátt segir þessi 31 árs gamli karlmaður sína sögu.

Mar 11, 202058:19
Leiðin til bata #11

Leiðin til bata #11

Gestur vikunnar segir á einlægan hátt hversu erfitt líf hann átti án þess að vera virkur í samtökunum þó hann væri edrú. 

„Ég hefði alveg eins getað verið að nota. Edrú líf án prógrammsins er bara mjög slæmur staður að vera á“.

Mar 04, 202001:29:24
Leiðin til bata #10

Leiðin til bata #10

Stelpa sem var tekin fyrir fíkniefnasmygl og sat inni i heilt ár, á undan því var búið að taka barnið af henni, hún misst móður sína og ekki til það efni sem hún hefur ekki notað. 

Er buin að vera edrú í 7 ár núna og á eiginlega ótrúlega flottum stað.  

Hún var fyrir nokkrum árum í sjónvarpsþætti sem hét Burðardýr. Hún sagði í kvöld frá hlutum og neyslu sem hefur aldrei áður komið fram.

Feb 25, 202001:40:22
Leiðin til bata #9

Leiðin til bata #9

„Ég man ekki eftir einu einasta fylleríi þar sem maður gat sagt að það hefði verið gaman. Þetta endaði alltaf með ofdrykkju og blackouti.“

Feb 19, 202057:36
Alanon samtökin #8

Alanon samtökin #8

Maðurinn hennar er alkóhólisti og hún missti dóttur sína aðeins 11 ára í heim fíkniefna. 

Ótrúleg saga Alanon konu sem settist niður með okkur með sína sögu.

Feb 10, 202001:28:37
Leiðin til bata #7

Leiðin til bata #7

Eftir 10 eða 11 meðferðir og ótal tilraunir til að snúa við blaðinu er komin með sinn fyrsta góða edrútíma. 31 árs gömul kona settist niður með okkur og sagði sögu sína hvernig hún lærði að segja já takk í stað já en......

Feb 04, 202001:06:36
12 reynsluspor #6

12 reynsluspor #6

Viðmælandi okkar þennan þáttinn lýsti afar vel sinni göngu gegnum 12 spora kerfi AA samtakanna eftir mikla og harða neyslu vímuefna.

Jan 29, 202001:27:40
Leiðin til bata #5

Leiðin til bata #5

"Ég sjálfur sá engin vandamál við mitt líf eða mína neyslu. Það var þjálfarinn minn sagði hingað og ekki lengra."

Jan 21, 202050:58
Leiðin til bata #4

Leiðin til bata #4

Hún var komin í dagneyslu á kanabis 12 ára, 14 ára svaf hún í stigagöngum. Siðustu ár hefur hún verið fangi morfíns. 33 ára kona sagði okkur sögu sína og hversu frábært líf hún hefur eignast á aðeins tveim árum.

Jan 16, 202050:52
Leiðin til bata #3

Leiðin til bata #3

Hann byrjaði seint að drekka og þó hann hafi aðeins drukkið um helgar var hann kominn með líf sitt á mjög slæman stað. 33 ára karlmaður sem fagnar 2 ára edrúmennsku sinni segir okkur sögu sína.

Jan 10, 202001:00:03
Leiðin til bata #2

Leiðin til bata #2

Í öðrum þætti fæ ég til mín 55 ára viðmælanda sem hefur verið edrú í 28 ár. Þátturinn er unninn í samstarfi við Podcaststöðina.

Dec 30, 201901:23:54
Leiðin til bata #1

Leiðin til bata #1

"Ég er búinn að vera edrú í ca 6 ár þegar ég er farin að velta því fyrir mér að drekka aftur því allt í einu finnst mér eitthvað vanta í minn bata". 

Hann er búinn að vera edrú í 28 ár og segir okkur sögu sína. í fyrsta þættinum Á leið til bata.

Dec 20, 201957:53