Skip to main content
Lýðræðisleg stjórnarskrárgerð

Lýðræðisleg stjórnarskrárgerð

By Lýðræðisleg stjórnarskrárgerð

Hlaðvarpið Lýðræðisleg stjórnarskrárgerð fjallar um aðkomu almennings í gerð og breytingum á stjórnarskrám. Rætt verður við þátttakendur, aktívista og sérfræðinga um þátttökulýðræði og stjórnarskrárbreytingar.
Available on
Apple Podcasts Logo
Google Podcasts Logo
Overcast Logo
Pocket Casts Logo
RadioPublic Logo
Spotify Logo
Currently playing episode

Þjóðfundurinn 2010 — seinni hluti: lærdómur til framtíðar?

Lýðræðisleg stjórnarskrárgerðFeb 19, 2020

00:00
44:18
Ungir kjósendur og stjórnarskráin 2

Ungir kjósendur og stjórnarskráin 2

Ungir Sjálfstæðismenn stigu fram til varnar núgildandi stjórnarskrá með vefsíðunni stjornarskra.com. Markmiðið var að leiðrétta ýmislegt sem þau telja misskilning á misskilningi byggt í sambandi við stjórnarskrána og frumvarp stjórnlagaráðs. Við spurðum þær Höllu Mathiesen og Lísbetu Sigurðardóttur hvers þær vilja halda í "gömlu" stjórnarskrána og hvers vegna þær eru andsnúnar frumvarpinu og hverju þurfi að breyta í þeirri gömlu

Dec 16, 202042:28
Ungir kjósendur og stjórnarskráin 1

Ungir kjósendur og stjórnarskráin 1

Við ræðum við Gunnhildi Fríðu Hallgrímsdóttur og Ósk Elvarsdóttur sem tókst með hjálp samfélagsmiðla að kveikja mikinn áhuga meðal ungs fólks á "nýju stjórnarskránni". Við spurðum þær um leyndarmálið á bak við árangurinn, hvernig áhugi þeirra kviknaði og hvers vegna þær vilja frekar að frumvarp Stjórnlagaráð verði fullgilt en að þeirri gömlu verði breytt.

Dec 14, 202030:31
Rökræðufundurinn, stjórnmálin og nýja stjórnarskráin

Rökræðufundurinn, stjórnmálin og nýja stjórnarskráin

Við lokum þessari þáttaröð með því að heyra ýmislegt áhugavert sem mínir sem þátttakendur í rökræðufundinum höfðu að segja, t.d. nýju stjórnarskrána, traust í garð stjórnmálanna og þátttöku almennings í lýðræðinu. Auk þess sem við reynum að lesa í og draga saman það sem fram hefur komið í þessum sex þáttum. 

Oct 12, 202001:01:14
Rökræðufundur og hvað svo?

Rökræðufundur og hvað svo?

Sævar Finnbogason ræðir við Valgerði Björk Pálsdóttur og Jón Ólafsson prófessor frá rannsóknarverkefninu um lýðræðislega stjórnarskrárgerð um sjónarmið þátttakenda og hvernig til tókst, líkurnar á því að takist að breyta stjórnarskránni, af hverju ekki var rætt um ákvæðið umnáttúruauðlindir á rökræðufundinum og hvort reynslan af þessari tilraun bendi til þess að rökræðukannanir virki í íslensku samhengi.

Oct 01, 202036:15
Samráð verður að hafa áhrif

Samráð verður að hafa áhrif

Sævar ræðir við þátttakendur í rökræðufundinum um breytingar á stjórnarskránni um væntingar þeirra til þess hvort niðurstöður rökræðufundarins hafi einhver áhrif á fyrirhugaðar stjórnarskrárbreytingar og hvort að það hefur áhrif á vilja þeirra til að taka þátt í svipuðum hlutum í framtíðinni og til stjórnmálanna almennt. Það hvort að stjórnmálamennirnir hlusta fundinn hefur mikil áhrif, bæði á þátttökuvilja og viðhorf fólks til hefðbundinna stjórnmála almennt.

Sep 24, 202044:60
Breyttust skoðanir á stjórnarskránni við þátttöku í rökræðufundinum?

Breyttust skoðanir á stjórnarskránni við þátttöku í rökræðufundinum?

230 Íslendingar sátu heila helgi og ræddu um breytingar á stjórnarskránni. Mikil umræða hefur um stjórnarskrána og frumvar Stjórnlagaráðs undanfarin ár og skiljanlega höfðu margir sterkar skoðanir fyrir. Þess vegna spurðum við þátttakendur á rökræðufundinum hvort þau skiptu um skoðun á einhverjum málefnum og ef þau skiptu ekki um skoðun hvort fólk taldi sig hafa betri forsendur fyrir skoðunum sínum eftir fundinn.

Sep 17, 202039:01
Rökræðufundur: Samræður og sérfræðingar

Rökræðufundur: Samræður og sérfræðingar

Í þættinum ræðum við við þátttakendur í rökræðufundinum um stjórnarskrána um upplifun þeirra af því að sitja heila helgi og ræða við ókunnugt fólk um stjórnarskrárbreytingar? gegnu samræðurnar vel? Voru innlegg sérfræðingana sem fengnir voru til að svara spurningum þátttakenda gagnleg? Voru þeir óhlutdrægir? í fyrsta þættinum kynntumst við átta þátttakendum í rökræðufundinum og nú spyr Sævar Finnbogason þau þessu og því hvað kom þeim mest á óvart við fundinn.

Sep 10, 202036:39
Rökræðufundur: Hvers vegna tekur fólk þátt?

Rökræðufundur: Hvers vegna tekur fólk þátt?

Hverjir eru til í að sitja heila helgi frá morgni til kvölds að ræða við bláókunnugt fólk um stjórnarskrárbreytingar? Er það fyrst og fremst fólk sem er fyrir virkt í stjórnmálum eða bara fólk eins og þú og ég?

Í þessari þáttaröð ræðir Sævar Finnbogason við átta þátttakendur í rökræðufundinum á um stjórnarskrárbreytingar sem haldinn dagana 8 og 9 nóvember 2019 um upplifun þeirra af fundinum, hvernig skoðanir þeirra þróuðust og væntingar þeirra til þess hvað verður gert við niðurstöðurnar. Viðmælendurnir eru á aldrinum átján til 77 ára, fjórir karlar og fjórar konur.  Í fyrsta þættinum kynnumst við viðmælendunum og heyrum hvers vegna þau samþykktu að taka þátt í rökræðufundinum þegar þau voru dregin út í slembivalinu. Við spyrjum þau líka hvort þau hefðu tekið þátt í hefðbundnum stjórnmálum eða teldu sig vera „pólitísk.“ Ekkert þeirra taldi sig vera pólitískt í þeim skilningi að vera flokkspólitískt eða stafa í stjórnmálaflokki, en sumir vissu heilmikið um stjórnarskrána fyrir fundinn, aðrir minna eins og gengur.  

Sep 03, 202030:47
Þjóðfundurinn 2010 — seinni hluti: lærdómur til framtíðar?

Þjóðfundurinn 2010 — seinni hluti: lærdómur til framtíðar?

Í þessum þætti ræðir Katrín Oddsdóttir við Lárus Ými Óskarsson, leikstjóra, og Bjarna Snæbjörn Jónsson, doktor í stjórnun og leiðtogafræðum, um stöðu og þróun lýðræðis meðal annars út frá íslenska stjórnarskrárferlinu.

Feb 19, 202044:18
Þjóðfundurinn 2010 — fyrri hluti

Þjóðfundurinn 2010 — fyrri hluti

Árið 2010 var haldinn þjóðfundur um þau gildi sem ættu að grundvalla nýja stjórnarskrá fyrir Ísland. Í þessum þætti ræðir Katrín Oddsdóttir við Lárus Ými Óskarsson og Bjarna Snæbjörn Jónsson, skipuleggjendur þjóðfundarins, um tilgang, aðferð og útkomu fundarins.

Feb 19, 202043:59
Björg Thorarensen — Hvað einkennir góðar stjórnarskrár?

Björg Thorarensen — Hvað einkennir góðar stjórnarskrár?

Geta stjórnarskrár komið í veg fyrir spillingu? Hvað einkennir góðar  stjórnarskrár? Í þessum þætti ræðir Jón Ólafsson við Björgu Thorarensen  lagaprófessor, sem er einn þátttakenda í DCD rannsóknarverkefninu um  þessar spurningar og almennt um stjórnarskrár og  stjórnarskrárbreytingar.

Nov 01, 201934:25