Skagahraðlestin
By Björn Þór Björnsson
Vertu velkominn um borð kæri hlustandi!
Umsjónarmaður: Björn Þór Björnsson
Tæknimál: Snorri Kristleifsson
SkagahraðlestinJul 10, 2020
Teitur Þórðarson - Leikmaðurinn
Jólaþáttur Skagahraðlestarinnar 2023 er viðtal við Teit Þórðarson í tveimur hlutum. Í fyrri hlutanum er fjallað um leikmanninn Teit Þórðarson og í þeim síðari þjálfarann. Leikmannaferill Teits er fyrir margt merkilegur. Hann átti sér þann draum frá því hann var ungur drengur að spila í atvinnumennsku erlendis. Hann sótti það hart að komast út en lengi vel virtist vera sem þær framtíðarvonir væru að fjara út. Örlögin tóku þá í taumana og í gegnum íslenskan lækni gat hann loks látið draum sinn rætast. Hann átti farsælan atvinnumannaferil þar sem hann lék í Svíþjóð, Frakklandi og Sviss.
Örsögur
ÍA hefur verið í fremstu röð í íslenskri knattspyrnu í 70 ár. Á ýmsu hefur gengið en viðfangsefni þáttarins eru nokkur einkennileg mál í sögu félagsins. Svaðilför á sjó, ólöglegir leikmenn og fleira.
Viðmælendur: Hörður Helgason, Steindóra Steinsdóttir og Sturlaugur Haraldsson.
George Kirby
George Kirby hafði mikil áhrif á knattspyrnuna á Akranesi. Hann gerði Skagamenn að Íslandsmeisturum 1974, 1975 og 1977 og að bikarmeisturum 1978 og 1982. Ferli hans hjá ÍA lauk þá á sorglegan hátt þegar ÍA féll úr efstu deild árið 1990.
Í þættinum kynnumst við Kirby, hverju hann breytti á Skaganum og hvers vegna hann gat ekki gert sömu hluti árið 1990 og hann gerði 1974 með Skagann.
Viðmælendur þáttarins eru: Haraldur Sturlaugsson, Þröstur Stefánsson, Ingibjörg Pálmadóttir, Brandur Sigurjónsson og Haraldur Ingólfsson.
Þátturinn er í boði Gamla Kaupfélagsins.
Bikarbullið
Árið 1997 fór fram afar einkennilegur leikur í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar.
Viðmælendur: Steinar Adolfsson, Pálmi Haraldsson, Ellert Jón Björnsson, Hjálmur Dór Hjálmsson, Jóhannes Gíslason og Sæmundur Víglundsson.
Bakarinn - Seinni hluti
Bakarinn, Gunnar Sigurðsson, var í forystu knattspyrnunnar á Akranesi hátt í þrjátíu ár. Það gekk á ýmsu á þessum tíma en það hefur gustað um Gunnar alla tíð og hann hefur verið umdeildur. Í viðtalinu verða hæðir og lægðir hans á ferlinum ræddar.
Þátturinn er í boði Íslandsbanka á Akranesi
Bakarinn - Fyrri hluti
Bakarinn, Gunnar Sigurðsson, var í forystu knattspyrnunnar á Akranesi hátt í þrjátíu ár. Það gekk á ýmsu á þessum tíma en það hefur gustað um Gunnar alla tíð og hann hefur verið umdeildur. Í viðtalinu verða hæðir og lægðir hans á ferlinum ræddar.
Þátturinn er í boði Fasteignasölunnar Hákots.
Minningar
Í níunda þætti Skagahraðlestarinnar fengum við þrjá Skagamenn, þau Hörð Helgason, Ellu Maríu Gunnarsdóttur og Sverri Mar Smárason til að segja okkur frá sínum eftirminnilegustu minningum tengdum Knattspyrnufélagi ÍA.
Laufey Sigurðardóttir
Í áttunda þætti Skagahraðlestarinnar settist Laufey Sigurðardóttir um borð og gerði upp stórmerkilegan feril sinn.
Markmenn
Í þættinum er fjallað um markmenn á breiðum grundvelli. Tekist er á við spurninguna: Hvers vegna í ósköpunum velur sér einhver að vera markmaður?
Gestir þáttarins eru Árni Snær Ólafsson og Páll Gísli Jónsson.
Indónesía og Barcelona
Árið 1979 var ævintýri líkast fyrir Skagamenn. Liðið fór í þriggja vikna keppnisferð til Norður-Súmötru á Indónesíu um vorið, spilaði tvo vináttuleiki við Feyenoord um sumarið og mætti svo Barcelona í Evrópukeppni bikarhafa um haustið. Álagið var mikið þetta ár því liðið lék alls 42 leiki frá miðjum mars til byrjun októbers. Jón Gunnlaugsson settist um borð í Skagahraðlestina til að fara yfir þetta merka ár.
Ivan Golac
Í þættinum er páfuglinn Ivan Golac til umræðu. Ferill hans skoðaður og rætt við Alexander Högnason og Ólaf Adolfsson um tíma hans hjá ÍA árið 1997
Erfðaefnið
Í þættinum að þessu sinni er erfðaefnið á Akranesi skoðað og því velt upp hvers vegna sömu ættirnar á Akranesi eigi afburðarknattspyrnumenn í Skagaliðinu kynslóð eftir kynslóð.
Viðmælendur: Sigurður Trausti Karvelsson, Unnur Ýr Haraldsdóttir & Tryggvi Hrafn Haraldsson, Ársæll Arnarsson, Stefán Teitur Þórðarson & Þórður Þorsteinn Þórðarson
Tímabilið 2001
Gunnlaugur Jónsson og Kári Steinn Reynisson mættu í Skagahraðlestina og gerðu upp tímabilið 2001.
Tónlistin og ÍA
Í öðrum þætti Skagahraðlestarinnar er umfjöllunarefnið tónlist. Fyrir þáttinn hafði ritstjórn þáttarins valið fjögur bestu stuðningsmannalög ÍA. Voru aðilar nátengdir lögunum boðaðir í hljóðver og beðnir um að segja frá tilurð laganna: Sigurður Guðmundsson (Skagamenn skora mörkin), Gísli Gíslason (Gulir og Glaðir), Pétur Óðinsson (Gula Skagahraðlestin) og Flosi Einarsson (Þetta lag er ÍA).
Í lok þáttar komu þrír leikmenn ÍA í viðtal, þeir Arnar Már Guðjónsson, Hallur Flosason og Viktor Jónsson. Þeir fengu m.a. það vandasama verkefni að útnefna besta stuðningsmannalag ÍA, en einnig voru verkefni Halls og Viktors á tónlistarsviðinu til umræðu.