Skip to main content
Skagahraðlestin

Skagahraðlestin

By Björn Þór Björnsson

Skagahraðlestin er hlaðvarpsþáttur framleiddur af stuðningsmönnum ÍA í knattspyrnu. Um borð í Skagahraðlestina munu koma ýmsir viðmælendur sem tengjast félaginu á einn eða annan hátt. Þátturinn hefur það að markmiði að allir geta haft gaman af, hvort sem fólk fylgist með knattspyrnu eður ei. Lítið verður rætt um nýaflokna leiki eða taktísk atriði en því meira um eftirminnileg atvik úr sögu félagsins og annað skemmtilegt sem tengist því.

Vertu velkominn um borð kæri hlustandi!

Umsjónarmaður: Björn Þór Björnsson
Tæknimál: Snorri Kristleifsson
Available on
Apple Podcasts Logo
Castbox Logo
Google Podcasts Logo
Overcast Logo
Pocket Casts Logo
PodBean Logo
RadioPublic Logo
Spotify Logo
Currently playing episode

Minningar

SkagahraðlestinSep 16, 2019

00:00
01:11:31
Teitur Þórðarson - Leikmaðurinn

Teitur Þórðarson - Leikmaðurinn

Jólaþáttur Skagahraðlestarinnar 2023 er viðtal við Teit Þórðarson í tveimur hlutum. Í fyrri hlutanum er fjallað um leikmanninn Teit Þórðarson og í þeim síðari þjálfarann. Leikmannaferill Teits er fyrir margt merkilegur. Hann átti sér þann draum frá því hann var ungur drengur að spila í atvinnumennsku erlendis. Hann sótti það hart að komast út en lengi vel virtist vera sem þær framtíðarvonir væru að fjara út. Örlögin tóku þá í taumana og í gegnum íslenskan lækni gat hann loks látið draum sinn rætast. Hann átti farsælan atvinnumannaferil þar sem hann lék í Svíþjóð, Frakklandi og Sviss.

Dec 18, 202301:26:17
Örsögur

Örsögur

ÍA hefur verið í fremstu röð í íslenskri knattspyrnu í 70 ár.  Á ýmsu hefur gengið en viðfangsefni þáttarins eru nokkur einkennileg mál í sögu félagsins. Svaðilför á sjó, ólöglegir leikmenn og fleira.

Viðmælendur: Hörður Helgason, Steindóra Steinsdóttir og Sturlaugur Haraldsson.

Oct 02, 202054:40
George Kirby

George Kirby

George Kirby hafði mikil áhrif á knattspyrnuna á Akranesi. Hann gerði Skagamenn að Íslandsmeisturum 1974, 1975 og 1977 og að bikarmeisturum 1978 og 1982. Ferli hans hjá ÍA lauk þá á sorglegan hátt þegar ÍA féll úr efstu deild árið 1990.

Í þættinum kynnumst við Kirby, hverju hann breytti á Skaganum og hvers vegna hann gat ekki gert sömu hluti árið 1990 og hann gerði 1974 með Skagann.

Viðmælendur þáttarins eru: Haraldur Sturlaugsson, Þröstur Stefánsson, Ingibjörg Pálmadóttir, Brandur Sigurjónsson og Haraldur Ingólfsson.

Þátturinn er í boði Gamla Kaupfélagsins.

Jul 23, 202001:22:57
Bikarbullið

Bikarbullið

Árið 1997 fór fram afar einkennilegur leikur í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar.

Viðmælendur: Steinar Adolfsson, Pálmi Haraldsson, Ellert Jón Björnsson, Hjálmur Dór Hjálmsson, Jóhannes Gíslason og Sæmundur Víglundsson.

Jul 10, 202001:04:53
Bakarinn - Seinni hluti

Bakarinn - Seinni hluti

Bakarinn, Gunnar Sigurðsson, var í forystu knattspyrnunnar á Akranesi hátt í þrjátíu ár. Það gekk á ýmsu á þessum tíma en það hefur gustað um Gunnar alla tíð og hann hefur verið umdeildur. Í viðtalinu verða hæðir og lægðir hans á ferlinum ræddar.

Þátturinn er í boði Íslandsbanka á Akranesi

Jun 26, 202001:11:40
Bakarinn - Fyrri hluti

Bakarinn - Fyrri hluti

Bakarinn, Gunnar Sigurðsson, var í forystu knattspyrnunnar á Akranesi hátt í þrjátíu ár. Það gekk á ýmsu á þessum tíma en það hefur gustað um Gunnar alla tíð og hann hefur verið umdeildur. Í viðtalinu verða hæðir og lægðir hans á ferlinum ræddar. 

Þátturinn er í boði Fasteignasölunnar Hákots.

Jun 13, 202001:14:55
Minningar

Minningar

Í níunda þætti Skagahraðlestarinnar fengum við þrjá Skagamenn, þau Hörð Helgason, Ellu Maríu Gunnarsdóttur og Sverri Mar Smárason til að segja okkur frá sínum eftirminnilegustu minningum tengdum Knattspyrnufélagi ÍA.

Sep 16, 201901:11:31
Laufey Sigurðardóttir

Laufey Sigurðardóttir

Í áttunda þætti Skagahraðlestarinnar settist Laufey Sigurðardóttir um borð og gerði upp stórmerkilegan feril sinn.

Aug 10, 201901:07:55
Markmenn

Markmenn

Í þættinum er fjallað um markmenn á breiðum grundvelli. Tekist er á við spurninguna: Hvers vegna í ósköpunum velur sér einhver að vera markmaður?

Gestir þáttarins eru Árni Snær Ólafsson og Páll Gísli Jónsson.

Jul 27, 201957:44
Indónesía og Barcelona

Indónesía og Barcelona

 Árið 1979 var ævintýri líkast fyrir Skagamenn. Liðið fór í þriggja vikna keppnisferð til Norður-Súmötru á Indónesíu um vorið, spilaði tvo vináttuleiki við Feyenoord um sumarið og mætti svo Barcelona í Evrópukeppni bikarhafa um haustið. Álagið var mikið þetta ár því liðið lék alls 42 leiki frá miðjum mars til byrjun októbers. Jón Gunnlaugsson settist um borð í Skagahraðlestina til að fara yfir þetta merka ár. 

Jul 03, 201901:08:19
Ivan Golac

Ivan Golac

 Í þættinum er páfuglinn Ivan Golac til umræðu. Ferill hans skoðaður og rætt við Alexander Högnason og Ólaf Adolfsson um tíma hans hjá ÍA árið 1997 

Jun 20, 201901:12:19
Erfðaefnið

Erfðaefnið

Í þættinum að þessu sinni er erfðaefnið á Akranesi skoðað og því velt upp hvers vegna sömu ættirnar á Akranesi eigi afburðarknattspyrnumenn í Skagaliðinu kynslóð eftir kynslóð.

Viðmælendur: Sigurður Trausti Karvelsson, Unnur Ýr Haraldsdóttir & Tryggvi Hrafn Haraldsson, Ársæll Arnarsson, Stefán Teitur Þórðarson & Þórður Þorsteinn Þórðarson

Jun 14, 201901:05:47
Tímabilið 2001

Tímabilið 2001

Gunnlaugur Jónsson og Kári Steinn Reynisson mættu í Skagahraðlestina og gerðu upp tímabilið 2001.

May 26, 201901:23:14
Tónlistin og ÍA

Tónlistin og ÍA

Í öðrum þætti Skagahraðlestarinnar er umfjöllunarefnið tónlist. Fyrir þáttinn hafði ritstjórn þáttarins valið fjögur bestu stuðningsmannalög ÍA. Voru aðilar nátengdir lögunum boðaðir í hljóðver og beðnir um að segja frá tilurð laganna: Sigurður Guðmundsson (Skagamenn skora mörkin), Gísli Gíslason (Gulir og Glaðir), Pétur Óðinsson (Gula Skagahraðlestin) og Flosi Einarsson (Þetta lag er ÍA). 

Í lok þáttar komu þrír leikmenn ÍA í viðtal, þeir Arnar Már Guðjónsson, Hallur Flosason og Viktor Jónsson. Þeir fengu m.a. það vandasama verkefni að útnefna besta stuðningsmannalag ÍA, en einnig voru verkefni Halls og Viktors á tónlistarsviðinu til umræðu. 

May 14, 201901:10:06
Kynslóða-lið

Kynslóða-lið

Í fyrsta þættinum fengum við þrjár kynslóðir Skagamanna, þau Benedikt Valtýsson (1946), Margréti Ákadóttur (1973) og Daníel Heimisson (1996) til að velja sitt besta lið skipuðum leikmönnum sem hafa staðið sig best í gulu treyjunni.
Apr 26, 201955:19