Skip to main content
Ráfað um rófið

Ráfað um rófið

By Ráfað um rófið

Eva Ágústa Aradóttir og Guðlaug Svala Kristjánsdóttir ráfa um einhverfurófið.
Available on
Google Podcasts Logo
Pocket Casts Logo
RadioPublic Logo
Spotify Logo
Currently playing episode

Ráfað um rófið 2 - Brynhildur Yrsa og gríman

Ráfað um rófiðJun 03, 2021

00:00
46:28
Ráfað um rófið 04 02 - Sensory mapping og tilfinningar

Ráfað um rófið 04 02 - Sensory mapping og tilfinningar

Í þessum þætti er ráfað um mjög mikilvæg svæði, nánar tiltekið skynjunina og það hvernig hægt er að kortleggja skynrænan prófíl hvers og eins. Óhjákvæmilega koma líka við sögu tilfinningar, því þær eru jú eitt af því sem við skynjum og upplifum.

Brauðsúpa, bjúgu, bað og bleyta eru líka meðal viðkomustaða, svona eins og gerist og gengur.

Apr 25, 202401:01:07
Ráfað um rófið 04 01 - Ertu Tesla?

Ráfað um rófið 04 01 - Ertu Tesla?

Þær Eva Ágústa og Guðlaug Svala eru mættar aftur eftir langt hlé og ráfa um víðan völl að vanda. Meðal viðkomustaða eru orkubókhald, life stressor scale, 7 tegundir hvíldar, mysingur og normal brauð.

Feb 01, 202446:37
Ráfað um rófið 03 06 Tilfinningar, sorg og fleira

Ráfað um rófið 03 06 Tilfinningar, sorg og fleira

TW: umræða um sorg og missi.

Í þessum þætti ráfa þær Eva Ágústa og Guðlaug Svala um svæði sem oft er ranglega talið vanta í einhverft fólk, nefnilega tilfinningar. Sorg er Evu ofarlega í huga, t.d. hvort einhverft fólk fari á ólíkan hátt gegnum sorgarferli en almennt gerist. Meðal annarra umræðuefna eru sjálfsmildi, stýrifærni, dagatalsblinda, PDA ofl ofl.

Jun 27, 202351:18
Ráfað um rófið 03 05 Sunna Dögg, stimm og fleira

Ráfað um rófið 03 05 Sunna Dögg, stimm og fleira

Ráfið hjá Evu Ágústu og Guðlaugu Svölu liggur um víðan völl í þessum þætti og leiðsögumaðurinn er Sunna Dögg Ágústsdóttir sem er verkefnastjóri málefna ungmenna hjá Þroskahjálp. Meðal áfangastaða á ráfinu eru stimm, þjóðfánar, handavinna og kettir svo eitthvað sé nefnt. Einnig hvernig það er að vera einhverf í óeinhverfu samfélagi, hvort kröfur eru sanngjarnar eða ekki og hvernig stendur á því að einstaklingur sem nýtur þess að læra skuli ekki hafa notið þess að vera í skóla. Efnisviðvörun: minnst er á sjálfsvígstilraun á einum stað í samtalinu.

Apr 25, 202359:52
Ráfað um rófið 03 04 - Jóhanna Birna og óhefðbundnar leiðir í námi

Ráfað um rófið 03 04 - Jóhanna Birna og óhefðbundnar leiðir í námi

Í Ráfi dagsins fá þær Eva Ágústa og Guðlaug Svala til sín góðan gest, Jóhönnu Birnu Bjartmarsdóttur, háskólanema í University of Florida. Hún leggur stund á nám í menntavísindum með fókus á heilsulæsi barna og stefnir að því að efla tækifæri barna til heilbrigðs lífs með því að efla almenna menntun um heilsu. Leið hennar til háskólanáms hefur þó síður en svo verið bein og breið, hún glímdi við alvarlegan heilsubrest og passaði illa inn í skólakerfið hérlendis vegna lesblindu, einhverfu og ADHD. Hún ákvað því að finna sína eigin leið, sem hún segir frá í þessum þætti - ásamt öðru. Rödd Jóhönnu Birnu hefur svo sannarlega náð eyrum margra eftir að hún sagði sögu sína á ráðstefnu BUGL um "skólaforðun". 

Mar 09, 202301:08:02
Ráfað um rófið 03 03 - Páll Ármann og Margrét Oddný, skóli.

Ráfað um rófið 03 03 - Páll Ármann og Margrét Oddný, skóli.

Hér er kominn seinni þátturinn af tveimur þar sem þær Eva Ágústa og Guðlaug Svala ráfa um rófið ásamt Páli Ármanni og Margréti Oddnýju Leópoldsdóttur. Leið ráfsins liggur um vegi skólagöngunnar og hvernig sú ganga blasir við frá sjónarhóli einhverfra. 

Feb 19, 202301:17:41
Ráfað um rófið 03 02 - Margrét Oddný og Páll Ármann, Seinhverfa

Ráfað um rófið 03 02 - Margrét Oddný og Páll Ármann, Seinhverfa

Í þessum þætti ráfa þær Eva Ágústa og Guðlaug Svala í fylgd tveggja gesta, sem bæði hafa komið áður í spjall. Margrét Oddný Leópoldsdóttir og Páll Ármann eru bæði, líkt og þær Guðlaug og Eva, seinhverf - eða uppgötvuðu með öðrum orðum einhverfuna sína á fullorðinsárum. Umræðan skoðar frá ýmsum sjónarhornum hvað það þýðir að greinast seint á einhverfurófi, hvort það er kostur að vita af einhverfunni og þá hvernig. Fjallað er um áskoranir og viðhorf samfélagsins og einhverfra sjálfra til lífsins og tilverunnar. "Er hægt að vera í ofbeldissambandi við samfélagið?" - er kannski stærsta spurningin sem spurt er í þessum þætti. 

Þessi þáttur er sá fyrri af tveimur þar sem viðmælendur eru þeir sömu. 

Feb 16, 202301:02:33
Ráfað um rófið 03 01 - Auður og skynjun

Ráfað um rófið 03 01 - Auður og skynjun

Í þessum fyrsta þætti ársins 2023 fá þær Eva Ágústa og Guðlaug Svala til sín góðan gest, hana Auði Ákadóttur, listakonu. Ráfið liggur að mestu um hina mjög svo margbreytilegu og áhugaverðu vegi skynjunar. Staldrað er við sjálfa skynjunina sem slíka, af hverju hún er svona mikilvæg til að skilja einhverfu, hvaða kosti óhefðbundin skynjun getur haft sem og hvaða áskoranir geta fylgt henni.

Ólíkar bragðtegundir af rjómaís koma líka við sögu, sem og normal (og abnormal) brauð. Meðal hápunkta er Chloé Hayden og afrek hennar, svo sem bókin Different not Less og leikur hennar í Heartbreak High. Lágpunktur gæti hins vegar verið erfiðleikar við að fara til læknis og gera sig skiljanlega í slíkum heimsóknum. 

Jan 19, 202356:25
Ráfað um rófið 02 10 - Bókstaflega deildin

Ráfað um rófið 02 10 - Bókstaflega deildin

Í þessum þætti ráfa þær Eva Ágústa og Guðlaug Svala um bókstaflegar slóðir, bæði hvað varðar orð, myndir og skynjun. Meðal viðkomustaða er skólaforðun (fáránlegt orð að okkar mati), lýsi, PDA, svo ekki sé minnst á paprikur og kartöflur - já og það hversu mörg tré þarf til að mynda skóg. 

Við þökkum kærlega fyrir dýrmæta viðurkenningu sem okkur hlotnaðist á dögunum, þegar við fengum Múrbrjótinn frá Þroskahjálp. Það er okkur mikils virði að ráfið okkar skuli vera talið brjóta niður múra, draga úr fordómum, auka fræðslu og skapa vettvang fyrir fatlað fólk. Þetta er okkur svo sannarlega hvatning til áframhaldandi verka.

Dec 15, 202256:41
Ráfað um rófið 02 09 - Veturinn og skammdegið, gott eða slæmt?

Ráfað um rófið 02 09 - Veturinn og skammdegið, gott eða slæmt?

Eva Ágústa og Guðlaug Svala ráfa um almanakið ogskoða áhrif skammdegisins á líðan einhverfra. Þeim til stuðnings eru svör frá meðlimum Skynsegin hópsins á facebook við spurningunni: Hvernig leggst veturinn í ykkur? Upplifið þið hann sem áskorun og þá hvernig? Eruð þið með einhver ráð til að tækla skammdegið? Ef þið upplifið veturinn sem uppáhaldstíma - hvers vegna er það?

Svörin eru margvísleg og áhugaverð, eins og við var að búast.

Nov 03, 202246:24
Ráfað um rófið 02 08 - Vinátta og einhverfa.

Ráfað um rófið 02 08 - Vinátta og einhverfa.

Í þessum þætti ráfa þær Eva Ágústa og Guðlaug Svala þvers og kruss um það jarðsprengjusvæði sem vinátta getur verið þegar einhverft fólk er annars vegar. Þessi umræða gæti triggerað erfiðar minningar, svo mælt er með því að fólk hlusti við góðar aðstæður og reikni jafnvel með að þurfa að melta efnið aðeins. 

Hvernig skilgreina einhverfir hugtakið vinátta? Hvað þýðir að vera vinur? Hvar finnum við vini? Og svo framvegis og svo framvegis...

Óeinhverfir, til dæmis aðstandendur einhverfra og kennarar, eru sérstaklega hvattir til að leggja við hlustir, því vinátta er svo dýrmætur hluti lífsins og það skiptir miklu máli að aðstæður bjóði upp á að einhverf börn (og fullorðnir ekki síður) eignist og geti ræktað vináttusambönd. 

Sep 15, 202247:43
Ráfað um rófið 02 07 - Áhugamál - eru áhugmál einhverfra eitthvað sérstök?

Ráfað um rófið 02 07 - Áhugamál - eru áhugmál einhverfra eitthvað sérstök?

Eva Ágústa og Guðlaug Svala ráfa í þessum þætti um lendur áhugamálanna - og þá sérstaklega áhugamál einhverfra. Þær fá til þess frábæra aðstoð frá spjallþræði á Fb-grúppunni Skynsegin, þar sem málið um áhugann er krufið til mergjar. Af hverju er það skrýtnara að hrífast af finnska vetrarstríðinu en enska boltanum? Þarf fullorðið fólk að skammast sín fyrir að skapa listaverk úr perlum (af því að þær eru barnadót) eða ofurást á blekpennum?
Við sögu koma klisjur, mýtur og fordómar - enda erum við að tala um einhverfu - en líka krafturinn og heilunin sem getur falist í því að sökkva sér ofan í flæði með því að sinna hugðarefnum sínum.
Sep 01, 202252:60
Ráfað um rófið 02 06 - Margrét Oddný, heilbrigðismál og þekkingarranglæti

Ráfað um rófið 02 06 - Margrét Oddný, heilbrigðismál og þekkingarranglæti

Ráf dagsins liggur um slóðir læknisfræði, siðfræði, samskipta og skilnings/leysis. Gestur Evu Ágústu og Guðlaugar Svölu er Margrét Oddný Leópoldsdóttir, læknir, textíllistakona, siðfræðinemi með meiru. Hún þekkir heilbrigðismál frá báðum hliðum þar sem hún kemur í dag að þeim sem sjúklingur. Samskipti og aðgengi að þjónustu, réttlæti og menning innan kerfisins er meðal þess sem ráfið snertir á og kynnti Margrét okkur meðal annars fyrir nokkrum áhugaverðum hugtökum - á borð við þekkingarranglæti, kenningum um sjónarhorn og fleira.
Jun 16, 202201:03:37
Ráfað um rófið 02 05 - Dagmar Ósk, dúkkubörn, handavinna og fleira

Ráfað um rófið 02 05 - Dagmar Ósk, dúkkubörn, handavinna og fleira

Ráfið liggur að þessu sinni alla leið á Selfoss, en gestir þáttarins koma einmitt þaðan. Dagmar Ósk Héðinsdóttir hefur vakið athygli fyrir dúkkubörnin sín og mætti til Evu Ágústu og Guðlaugar Svölu ásamt hinni brosmildu Rósu Lind. Dúkkubörn hjálpa mikið með kvíða og depurð, framkalla vellíðan með faðmlögum og verða oft til þess að skapa samtöl og tengsl. Stundum mæta foreldrar dúkkubarna fordómum en oft vekja dúkkubörnin gleði og ánægju. Fjölbreytileiki einhverfurófsins, boccia, handavinna og prjónakennsla á elliheimili koma líka við sögu.

May 31, 202245:52
Ráfað um rófið 02 04 - Heiða Dögg, Marglitur mars ofl ofl

Ráfað um rófið 02 04 - Heiða Dögg, Marglitur mars ofl ofl

Gestur þáttarins er Aðalheiður Dögg, Heiða Dögg eða Einhverfa Döggin, allt eftir því hvar þið rekist á hana. Hún er í stjórn Einhverfusamtakanna og var ásamt þeim Evu Ágústu og Guðlaugu Svölu í undirbúningsteymi listahátíðarinnar Marglitur Mars, sem samtökin stóðu að í tilefni af alþjóðadegi einhverfu nú í vor. Viðkomustaðirnir á ráfinu eru þó mun fleiri, enda talsvert af bæði einhverfu og ADHD í Rabbrýminu að þessu sinni. Vinnuaumhverfi sem hentar einhverfum, eitraðar staðalímyndir, fegurð fjölbreytileikans og að fá rými til að láta rödd sína berast - og næði til að vera maður sjálfur - eru meðal þess fjölmarga sem umræðan snerti á. Svo ekki sé minnst á óvænta byrjun á þættinum í boði Evu Ágústu. 

May 18, 202251:05
Ráfað um rófið 02 03 - Húmor og einhverfa

Ráfað um rófið 02 03 - Húmor og einhverfa

Í þessum þætti ráfa Eva Ágústa og Guðlaug Svala um lendur gríns og gleði, lesa innsendar sögur frá hlustendum um fyndna atburði eða sögur úr lífinu þar sem húmor er í aðalhlutverki. Allnokkrar fjalla um misskilning sem gjarnan tengist bókstaflegri hugsun og túlkun. Sumar eru um ólíka afstöðu til árshátíða eða vinnustaðagleði og jafnvel vandræðaleg samskipti kynjanna. Óþægilega hreinskilnar spurningar og athugasemdir eiga líka sitt pláss, nema hvað. Góða skemmtun og takk fyrir að deila sögum ykkar með okkur og áheyrendum kæru vinir. 

Apr 13, 202246:41
Ráfað um rófið 02 02 - Hrönn Kristey, hjálparhundar, aðrir hundar og fleiri dýr

Ráfað um rófið 02 02 - Hrönn Kristey, hjálparhundar, aðrir hundar og fleiri dýr

Í þessum þætti fara Eva Ágústa og Guðlaug Svala út að ráfa með hundinn... eða þannig :) Hrönn Kristey Atladóttir, hundaþjálfari, leiðir þær í allan sannleik um hunda og gagnsemi þeirra fyrir einhverfa og bara alla sem gætu þurft að tala við aðila sem hlustar vel, rukkar ekki fyrir tímann sinn og skráir ekkert niður í gagnagrunn (hund semsagt). Reynsla Hrannar af hundum hófst í bernsku og sótti hún strax til þeirra öryggi og félagsskap. Í dag kennir hún fólki að umgangast þessi tryggu dýr og hefur skapað sér atvinnu úr styrkleika sínum og áköfu áhugamáli. Hér er loks að finna allt sem þarf að vita til að finna og eignast hjálparhund, sem fleiri og fleiri hafa áhuga á í dag. 

Feb 25, 202254:59
Ráfað um rófið 02 01 - Elísabet, einhverfa og fíkn

Ráfað um rófið 02 01 - Elísabet, einhverfa og fíkn

Eva Ágústa og Guðlaug Svala fá til sín góðan gest, Elísabetu, í fyrsta þætti ársins 2022. Að þessu sinni liggur ráfið um slóðir fíknar, tengsla einhverfu og fíknar og þarfir einhverfra í meðferð og edrúmennsku. Einnig er staldrað við áhugaverðar staðreyndir, eins og ókosti þess að endurheimta lyktarskyn eftir að hætta að reykja, hvort skemmtistaðir eru í raun góðir staðir fyrir skemmtun og ýmislegt annað fróðlegt. 

Feb 10, 202249:53
Ráfað um rófið 8 - hátíðir, veislur og venjur

Ráfað um rófið 8 - hátíðir, veislur og venjur

Eva Ágústa og Guðlaug Svala ráfa um kosti og galla hátíða, siða og skylduverka. Hvað er gott og hvað er erfitt þegar kemur að afmælisveislum, fjölskylduboðum, ferðalögum og stórhátíðum? Þarf alltaf að vera hangikjöt? Þarf að taka til áður en skrautið er sett upp?

Stundum er sagt að börn verði bara að læra að venjast veislum og að taka þátt í félagslífinu eins og það er. Ætli það sé alltaf góð hugmynd?

Hvað með fullorðna fólkið, má það vera styttri tíma en aðrir í matarboðum eða kannski fara afsíðis og jafna sig af og til? 

Jólabúbblur, kóræfingar, ullarföt, rósakál og fleira í þessum hátíða- og veisluþætti, gjörið svo vel.

Nov 04, 202157:14
Ráfað um rófið 7 - Sigga Birna, trans og kynjarófið

Ráfað um rófið 7 - Sigga Birna, trans og kynjarófið

Eva Ágústa og Guðlaug Svala fá til sín góðan gest, Siggu Birnu Valsdóttur fjölskyldu- og leiklistarmeðferðarfræðing sem starfar við rágjöf hjá Samtökunum 78. Ráfið fer að þessu sinni mestmegnis fram á vegamótunum þar sem einhverfurófið og kynjarófið mætast. Tengsl þessara rófa eru rædd, aðstaða einstaklinga sem tilheyra þeim báðum, innsýn kerfisins og þjónusta við þennan hóp. Það er áskorun að tilheyra fleiri en einum minnihlutahópi og því er lífsnauðsynlegt að temja sér að hlusta ekki bara með eyrunum, heldur öllum skynfærunum þegar slík reynsla er annars vegar. Málfarshornið fær smá pláss líka, enda fjölmörg ný hugtök og orð sem mörgum geta þótt framandleg á kynjarófinu. Ef spurningar vakna í framhaldi af hlustun á þáttinn er um að gera að hafa samband við Samtökin 78 sem svara glöð öllum spurningum sem lúta að málefnum hinsegin, trans og kynsegin fólks. 

Sep 06, 202154:31
Ráfað um rófið 6 - rútínur, PDA, hegðun sem tjáning á líðan ofl.

Ráfað um rófið 6 - rútínur, PDA, hegðun sem tjáning á líðan ofl.

Eva Ágústa og Guðlaug Svala ráfa vítt og breitt um málefni tengd rútínum, rútínuleysi, breytingatímabilum og öðru sem þeim dettur í hug. Hegðun sem tjáning á líðan kemur við sögu, tjáning á öðru formi en orðum, af hverju verða börnin matvönd haust og vor - já og smá rapp til að krydda umræðuna. 

Aug 26, 202145:24
Ráfað um rófið 5 - orkubókhald og fleira

Ráfað um rófið 5 - orkubókhald og fleira

Eva Ágústa og Guðlaug Svala ráfa yfir farinn veg og ræða áhugavert efni sem komið hefur upp í spjalli við gesti undanfarið. Þar má nefna eigið tungumál, áfallavinnu, afsannaðar mýtur um einhverfa, sköpun og sögugerð og fleira. Orkubókhald (Maja Toudal, energy accounting) kemur líka við sögu sem og önnur úrræði sem koma að gagni við að vernda orkuna sína. 

Jul 09, 202139:40
Ráfað um rófið 4 - Páll Ármann, áföll og áfallastreita

Ráfað um rófið 4 - Páll Ármann, áföll og áfallastreita

Ráfið um einhverfurófið liggur í þessum þætti um brautir áfalla. Gestur Evu Ágústu og Guðlaugar Svölu, Páll Ármann, veltir fyrir sér eðli og orsökum áfalla, mögulegum tengslum þeirra við einhverfu eða hvort þau eru bara hluti þess að vera manneskja. Meðal viðkomustaða á ráfinu eru grillaðar samlokur, geltandi hundar og mikilvægi þess að fá hlustun, skilning og stuðning til að jafna sig á erfiðum upplifunum. 

TW: umræða um áföll og erfiða lífsreynslu gæti verið triggerandi. 

Jun 28, 202147:35
Ráfað um rófið 3 - Frida Adriana og einhverfa í kvikmyndum

Ráfað um rófið 3 - Frida Adriana og einhverfa í kvikmyndum

Í þriðja ráfinu um einhverfurófið leiðir Frida Adriana, listamaður á litrófi, þær Evu Ágústu og Guðlaugu Svölu um hinar ýmsu kvikmyndir og birtingarmyndir einhverfu á hvíta tjaldinu. Hún lýsir því hvernig hún speglar sig í þeim og segir okkur frá því hvernig kvikmyndir leiddu hana á spor einhverfugreiningarinnar. Einnig kemur við sögu að hlusta með fótunum eins og fílar, dansa af stressi eins og lundi og hugsa eins og kú eða hestur - já og að tala sitt eigið heimatilbúna tungumál. Stuttmynd um fíl að nafni "Kjarni málsins" sem reynir að kveðja gamlar fílaminningar og finna nýja vini er á teikniborði Fridu og verður spennandi að fylgjast með henni.

Jun 19, 202144:05
Ráfað um rófið 2 - Brynhildur Yrsa og gríman

Ráfað um rófið 2 - Brynhildur Yrsa og gríman

Eva Ágústa Aradóttir og Guðlaug Svala Kristjánsdóttir ráfa um einhverfurófið í fylgd Brynhildar Yrsu Valkyrju, leikskólakennara og bullusöguhöfundar með meiru. Aðalþema þáttarins er einhverfugríman, eða masking, sem flestir á einhverfurófinu þekkja kannski einum of vel. Meðal annarra viðkomustaða á ráfinu að þessu sinni eru nafnabreytingar, styrkleikar einhverfunnar, ofuráhugi og leitin að því að skilja sjálfa sig. Við þökkum Brynhildi Yrsu kærlega fyrir áhugavert og skemmtilegt spjall og hlökkum til að heyra bullusögurnar þegar fram líða stundir. 

Jun 03, 202146:28
Ráfað um rófið 1

Ráfað um rófið 1

Eva Ágústa Aradóttir og Guðlaug Svala Kristjánsdóttir ráfa um einhverfurófið. Meðal viðkomustaða að þessu sinni er (s)einhverfa - að fá einhverfugreiningu fullorðin, áhugamál, öldin okkar og húmor. Við stöldrum líka við greininguna sem leið til að losna við gamla merkimiða á borð við leti, reiðivanda eða matvendni. Við skoðum fjölbreytni fólks á rófinu, einhverfa grínista og leikara, myndræna hugsun og bráðlæsi. Verið velkomin að ráfa með okkur, rófið er áhugaverður áfangastaður. Þið getið fundið okkur sem evagusta.photos og gkdottir á samfélagsmiðlum.

May 21, 202139:07