Víkings hlaðvarpið
By Víkingur Media
Víkings hlaðvarpiðSep 20, 2023
Fólkið okkar - Arnar Gunnlaugsson
Loksins náðum við í skottið á Arnari Gunnlaugssyni þjálfara meistaraflokks karla og stilltum honum upp fyrir framan hljóðnemann í Víkings stúdíóinu.
Það er mjög viðeigandi að Hörður og Bjarki hafi grillað Arnar í 90 mínútur og fengu aðeins að kynnast manneskjunni Arnari Gunnlaugssyni betur. Aðeins öðruvísi viðtal en Arnar er kannski vanur, en dómur féll strax eftir viðtalið : "Strákar, þetta var helvíti gaman". Betri meðmæli fást ekki.
Fólkið okkar - Þórarinn Einar Engilbertsson
Serían "Fólkið okkar" heldur áfram. Hér fáum við að kynnast fólkinu okkar sem gerir allt nema að spila fótboltaleikina sjálfa.
Hörður og Bjarki fengu Þórarinn Einar Engilbertsson (Tóta) í heimsókn og ræddu hvað þjálfarastarfið felur í sér og hver sýn Tóta er á þjálfun í yngri flokkunum.
Stelpurnar okkar : Gígja og Rakel
Stelpurnar okkar - Season 2 - Þáttur 1
Bjarki og Hörður fengu tvo leikmenn meistaraflokks í heimsókn.
Gígja Valgerður Harðardóttir var byrjuð að spila fótbolta í meistaraflokki áður en Rakel Sigurðardóttir fæddist. Farið var yfir ferilinn, hvernig er að vera Víkingur, hvernig tilfinningin var fyrir Rakel að vera í stúkunni á sjálfum Bikarúrslitaleiknum þar sem hún hélt með Breiðablik og margt margt fleira.
Takk kærlega fyrir komuna í Víkings Podcastið Gígja og Rakel. Áfram Víkingur ❤️🖤
Uppgjörið - John og Kristó
Hörður og Bjarki náðu tali af John Andrews og Kristófer Sigurgeirssyni og fóru yfir stöðuna hjá Meistaraflokki kvenna.
Í þættinum er meðal annars að finna :
- Hvernig fór sumarið 2023? Var John sáttur með árangurinn?
- Af hverju við Víkingar eigum ekki leikmann í A landsliði kvenna
- Yngri flokka þjálfun
- Gerðum smá grín að Kristó
- Mikil enska töluð af því að John krefst þess að öll viðtöl séu á ensku
- Hvaða leikmenn eru að koma upp
En í stuttu máli þá var mikið hlegið, hefðum getað verið í 8 klukkutíma en látum rétt rúmlega klukkutíma duga.
Fólkið okkar - Viktor Bjarki Arnarsson
Serían "Fólkið okkar" er komin af stað. Hér fáum við að kynnast fólkinu okkar sem gerir allt nema að spila fótboltaleikina sjálfa.
Það var því heldur betur við hæfi að hitta á Viktor Bjarka sem tók nýlega við starfi yfirþjálfara yngri flokka Víkings. Viktor er Víkingur í húð og hár en kom víða við á ferlinum sem leikmaður og hefur undanfarin ár starfað við þjálfun.
Hörður og Bjarki náðu tali af honum í dag og fóru yfir ferilinn, þjálfarastarfið og brekkuna og malarvöllinn í Hæðargarði. Velkominn heim Viktor!
Uppgjörið með Bjarka og Herði
Bjarki og Hörður mættu "under the lights" í Víkings stúdíóið og fóru yfir tímabilið 2023 hjá Meistaraflokki kvenna.
Farið var yfir Lengjubikarinn, Lengjudeildina og að sjálfsögðu Mjólkurbikarinn.
Hver var markahæst í sumar?
Hver átti flestar stoðsendingar?
Hver fékk flest gul spjöld?
Njótið vel.
Eftirpartý: 2-2 jafntefli við KR
Markús Árni fékk til sín þá Gísla Gottskálk & Þórð Ingason eftir 2-2 jafntefli við KR á heimavelli hamingjunnar í kvöld.
Eftirpartý: 5-3 sigur gegn Breiðablik
Aron Baldvin fékk til sín tvo úr starfsliði Víkings þá Sölva Geir & Guðjón Örn eftir 5-3 sigur okkar Víkinga gegn Breiðablik í kvöld.
Eftirpartý: Bikarúrslit 2023 here we come
Markús fékk til sín Ara Sigurpálsson & Aron Elís í spjall eftir 4-1 sigur gegn KR á Víkingsvelli og erum við að fara í fjórða bikarúrslitaleikinn í röð!
Eftirpartý: 6-1 sigur gegn HK
Aron Baldvin fékk til sín Viktor Örlyg & Gísla Gottskálk í spjall eftir 6-1 sigur gegn HK á Víkingsvelli.
Fyrirmyndirnar okkar: Glódís Perla Viggósdóttir
Fyrirmyndirnar okkar - þáttur 5
Glódís Perla Viggósdóttir, leikmaður Bayern München og íslenska landsliðsins kíkti í heimsókn í Víkings stúdíóið.
Hörður og Hrafnhildur ræddu við Glódísi um upprunann í HK/Víking, tímabilið 2011 þegar hún skorar 14 mörk í 11 leikjum og spilar sem framherji, að byrja ung að spila með meistaraflokki, góð ráð fyrir yngri iðkendur og auðvitað hvað þarf til að ná árangri í fótbolta.
Glódís Perla er augljóslega mjög metnaðarfull en á sama tíma skín af henni auðmýktin og þakklætið fyrir að fá að gera það sem hún er að gera í lífinu.
Það var sannur heiður að fá að setjast niður með henni og ræða um það sem við elskum jú öll, fótbolta.
Eurovikes: Riga FC - Víkingur
Arnar Gunnlaugsson & Sölvi Geir Ottesen mættu í spjall fyrir leikinn gegn Riga FC.
Fyrirmyndirnar okkar: Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
Fyrirmyndirnar okkar - þáttur 4
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður Leverkusen (á láni frá Bayern München) og íslenska landsliðsins kíkti í Víkings stúdíóið og ræddi við Hörð og Hrafnhildi um ferilinn, að byrja ung í meistaraflokki, titlar, töp og hvað þarf til að ná árangri í fótbolta.
Karólína er metnaðarfull fótboltakona sem ætlar að alla leið og það var sannur heiður að fá að setjast niður með henni og ræða um það sem við elskum, fótbolta.
Stelpurnar okkar: Elíza og Unnbjörg
Stelpurnar okkar - þáttur 9
- Tímabæra umfjöllunin um fyrri hluta tímabilsins
Blað var brotið í sögu Víkings podcastsins þegar Bjarki og Hörður tóku á móti Elízu og Unnbjörgu í sjálfri Hamingjustúkunni í Víkinni. Farið var yfir víðan völl eins og vanalega en þó reynt að halda fókus. Það reyndist sumum erfiðara en öðrum því meistaraflokkur karla var að æfa á aðalvellinum á meðan upptökum stóð. Klukkutími af hreinni Víkings ástríðu.
Takk kærlega fyrir komuna í Víkings Podcastið Elíza og Unnbjörg. Áfram Víkingur
Stelpurnar okkar: Kolbrún Tinna og Linda Líf
Stelpurnar okkar - þáttur 8
- Leikmenn meistaraflokks kvenna koma í heimsókn.
Við höldum áfram að kynna leikmenn í meistaraflokki kvenna. Til okkar kíktu Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir og Linda Líf Boama og eins og vanalega var rætt um allskonar. Sérstakar þakkir fá Bergdís og Katla fyrir að vera í sjúkraþjálfun hjá Dagmar ákkúrat á meðan á upptökum stóð.
Takk kærlega fyrir komuna í Víkings Podcastið Kolbrún Tinna og Linda Líf.
Eftirpartý: 2-0 sigur gegn Stjörnunni
Markús Árni fær til sín Davíð Örn Atlason og Danijel Djuric til sín í spjall eftir 2-0 sigur Stjörnunni á Víkingsvelli.
Eftirpartý: 3-1 sigur gegn Fram
Markús Árni fær til sín Pablo Punyed og Karl Friðleif til sín í spjall eftir 3-1 sigur Fram á Víkingsvelli.
Eftirpartý: fyrsti tapleikur sumarsins
Markús Árni fær til sín Halldór Smára og Sölva Geir Ottesen til sín í spjall eftir 2-3 tap gegn Val sem er fyrsti tapleikur sumarsins.
Stelpurnar okkar: Dagbjört og Hafdís
Stelpurnar okkar - þáttur 7
- Leikmenn meistaraflokks kvenna koma í heimsókn.
Við höldum áfram að kynna leikmenn í meistaraflokki kvenna. Til okkar kíktu Dagbjört Ingvarsdóttir og Hafdís Bára Höskuldsdóttir og var farið yfir víðan völl, allt frá því hvernig takkaskóm þær spila í, barneignir, jafnréttismál og svo auðvitað tímabilið 2023. Takk kærlega fyrir komuna í Víkings Podcastið Dagbjört Ingvarsdóttir og Hafdís Bára Höskuldusdóttir
Ultravikes: Arnar Gunnlaugs heiðursgestur dagsins
Ultravikes er skemmtileg þáttaröð á Víkings podcastinu en umsjónarmenn þáttana eru þeir Jón Stefán og Arnar páll sem ræða allt á milli himins og haf um málefni meistaraflokk karla hjá Víking.
Eftirpartý: 2-0 sigur gegn FH
Markús Árni er þáttastjórnandi eftirpartý og fær til sín Erling Agnarsson & Loga Tómasson til sín í spjall eftir 2-0 sigurinn gegn FH
Ultravikes: Ari Sigurpáls heiðursgestur dagsins
Ultravikes er skemmtileg þáttaröð á Víkings podcastinu en umsjónarmenn þáttanna eru þeir Jón Stefán og Arnar páll sem ræða allt á milli himins og haf um málefni meistaraflokk karla hjá Víking.
Stelpurnar okkar: Hulda og Svanhildur
Stelpurnar okkar - þáttur 6
- Leikmenn meistaraflokks kvenna koma í heimsókn.
Hulda Ösp Ágústsdóttir og Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir kíktu til okkar og ræddu hvernig tilfinningin er að að taka á móti bikar á Heimavelli Hamingjunnar, hvernig þeim líst á hópinn og hvernig þeim líst á sumarið. Þær eru meira í því að láta verkin tala inni á vellinum og leyfa öðrum að rífa kjaft. Frábærar fyrirmyndir og fótboltakonur.
Eftirpartý: 1-0 sigur gegn KA
Markús Árni er þáttastjórnandi Eftirpartý þar sem hann fær leikmenn í spjall til sín eftir leiki liðsins í sumar.
Gunnar Vatnhamar & Sveinn Gísli voru gestir Markúsar eftir leikinn gegn KA
Stelpurnar okkar: Bergdís og Sigdís
Stelpurnar okkar - þáttur 5
- Leikmenn meistaraflokks kvenna koma í heimsókn.
Bergdís Sveinsdóttir og Sigdís Eva Bárðardóttir ræddu hvernig það er að vera 16 ára í meistaraflokki, hvernig er að vinna bikar klædd í Víkingstreyjuna og hvernig tilfinningin er að spila fyrir Íslands hönd. Frábærar fyrirmyndir og frábærar fótboltakonur.
Eftirpartý: 3-0 sigur gegn KR
Markús Árni er þáttastjórnandi Eftirpartý þar sem hann fær leikmenn í spjall til sín eftir leiki liðsins í sumar.
Ingvar Jónsson & Helgi Guðjónsson mættu til Markúsar eftir 3-0 sigur gegn KR.
Stelpurnar okkar: Helga og Tara
Stelpurnar okkar - þáttur 4
- Leikmenn meistaraflokks kvenna koma í heimsókn.
Helga Rún Hermannsdóttir og Tara Jónsdóttir kíktu á Hörð og Hrafnhildi í Víkings Studioið!
Tómar þór ásamt Davíð Örn & Halldór Smári
Tómas þór fær leikmennina Davíð Örn & Halldór Smári til sín í spjall
Ultravikes: þáttur 3
Ultravikes er skemmtileg þáttaröð á Víkings podcastinu en umsjónarmenn þáttanna eru þeir Jón Stefán og Arnar páll sem ræða allt á milli himins og haf um málefni meistaraflokk karla hjá Víking
Stelpurnar okkar: Selma og Erna
Stelpurnar okkar - þáttur 3
- Leikmenn meistaraflokks kvenna koma í heimsókn.
Selma Dögg Björgvinsdóttir og Erna Guðrún Magnúsdóttir kíktu í heimsókn í stúdíóið. Ekki missa af þessum þætti!
Eftirpartý: Matti Villa & Halldór Smári eftir Fylkisleikinn
Markús Árni er þáttastjórnandi Eftirpartý þar sem hann fær leikmenn í spjall til sín eftir leiki liðsins í sumar.
Matti Villa & Halldór Smári mættu til Markúsar eftir Fylkisleikinn fyrstu gestir þáttarins eftir Fylkisleikinn.
Stelpurnar okkar: Nadía og Emma
Stelpurnar okkar - þáttur 2
- Leikmenn meistaraflokks kvenna koma í heimsókn.
Nadía Atladóttir og Emma Steinsen kíktu í heimsókn í stúdíóið og ræddu um ferilinn, fyrirmyndir, fortíð og framtíð.
Fyrirmyndirnar okkar: Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Fyrirmyndirnar okkar - þáttur 3
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, leikmaður Stjörnunnar og íslenska landsliðsins kíkti í Víkings stúdíóið og ræddi við Hörð og Hrafnhildi um ferilinn, að vera tapsár, meiðsli, sigra, töp og hvað þarf til að ná árangri í fótbolta.
Fyrirmyndirnar okkar er ný podcast sería á Víkings podcastið þar sem við fáum fyrrverandi og núverandi landsliðsmenn í knattspyrnu í viðtal.
Fyrirmyndirnar okkar: Elísa Viðarsdóttir
Fyrirmyndirnar okkar - þáttur 2
Elísa Viðarsdóttir, leikmaður Vals og íslenska landsliðsins kíkti í Víkings stúdíóið og ræddi við Hörð og Hrafnhildi um ferilinn, hæðir, lægðir, sigra, töp og hvað þarf til að ná árangri í fótbolta.
Fyrirmyndirnar okkar er ný podcast sería á Víkings podcastið þar sem við fáum fyrrverandi og núverandi landsliðsmenn í knattspyrnu í viðtal.
Ultravikes: farið yfir byrjun tímabilsins
UltraVikes er skemmtileg þáttaröð á Víkings podcastinu en umsjónarmenn þáttanna eru þeir Jón Stefán og Arnar Páll sem ræða allt á milli himins og haf um málefni meistaraflokk karla hjá Víking.
Stelpurnar okkar: Unnbjörg og Katla
Stelpurnar okkar - þáttur 1
- Leikmenn meistaraflokks kvenna koma í heimsókn.
Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir og Sigurborg Katla Sveinbjörnsdóttir kíktu í heimsókn í stúdíóið og ræddu um ferilinn, fyrirmyndir, fortíð og framtíð.
UltraVikes: Hvernig er að vera Víkings aðdáendi í dag?
UltraVikes er ný þáttaröð á Víkings podcastinu en umsjónarmenn þáttanna eru þeir Jón Stefán og Arnar Páll sem ræða allt á milli himins og haf um málefni meistaraflokk karla hjá Víking.
Fyrirmyndirnar okkar: Sif Atladóttir
Fyrirmyndirnar okkar er ný podcast sería á Víkings podcastið þar sem við fáum fyrrverandi og núverandi landsliðsmenn í knattspyrnu í viðtal.
Hörður Ágústsson ásamt John Andrews
Hörður Ágústsson fær John Andrews, þjálfara meistaraflokk kvenna til sín í spjall
Tómas Þór ásamt Arnar Gunnlaugs & Kára Árna
Covid Uppgjör
Fullmannaður bátur, mikið gaman og mikið fjör
Handboltaleikur Á Nesinu
0 Stig Af 6 Í Boði Helga
Víkingar Tóku 3 Stig En FH Tók Loga
Vonbrigði Í Víkinni
Upphitun Fyrir Max 2020
Hetjur Víkings
Víkingur er bikarmeistari!!!
Til hamingju Víkingar og til hamingju íslenskur fótbolti